Agüero búinn að skora í öllum leikjum City

Sergio Agüero er markahæstur í ensku úrvalsdeildinni ásamt Tammy Abraham.
Sergio Agüero er markahæstur í ensku úrvalsdeildinni ásamt Tammy Abraham. AFP

Sergio Agüero, framherji í enska meistaraliðinu Manchester City, og Tammy Abraham, framherji Chelsea, eru markahæstir í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu en fimmtu umferðinni lýkur í kvöld með leik Aston Villa og West Ham.

Agüero hefur skorað í öllum leikjum Englandsmeistaranna en Abraham hefur verið heitur í síðustu leikjum og skoraði þrennu í 5:2 sigri Chelsea á útivelli gegn Wolves á laugardaginn.

Markhæstu leikmenn:

7 - Sergio Agüero, Manchester City

7 - Tammy Abraham, Chelsea

6 - Teemu Pukki, Norwich

5 - Raheem Sterling, Manchester City

4 - Ashley Barnes, Burnley

4 - Sadio Mané, Liverpool

4 - Mohamed Salah, Liverpool

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert