Tvö mörk í uppbótartíma (myndskeið)

Craig Dawson tryggði Watford afar dýrmætt jafntefli gegn Leicester í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Leiknum lauk með 1:1-jafntefli en Dawson jafnaði metin fyrir Watford í uppbótartíma eftir að Ben Chilwell hafði komið Leicester yfir skömmu áður.

Leicester er áfram í þriðja sæti deildarinnar með 54 stig en Watford er komið í sextánda sæti deildarinnar í 28 stig.

Leikur Watford og Leicester var í beinni útsendingu á Síminn Sport.

Watford og Leicester gerðu dramatískt jafntefli í dag.
Watford og Leicester gerðu dramatískt jafntefli í dag. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert