Lék sinn fyrsta leik með West Ham

Dagný Brynjarsdóttir lék sinn fyrsta leik með West Ham í …
Dagný Brynjarsdóttir lék sinn fyrsta leik með West Ham í dag. Ljósmynd/West Ham

Landsliðskonan Dagný Brynjarsdóttir lék sinn fyrsta leik með West Ham er liðið mátti þola 0:2-tap fyrir Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. 

Dagný var í byrjunarliði West Ham og lék allan leikinn. Dagný, sem kom til West Ham í janúar, hefur verið að glíma við meiðsli og lék því ekki með liðinu fyrr en í dag. 

West Ham er í ellefta sæti af tólf liðum með átta stig, tveimur stigum fyrir ofan botnlið Bristol City og í mikilli botnbaráttu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert