Eiður: Kemur í ljós hversu viðkvæmir United-menn eru

Eiður Smári Guðjohnsen og Bjarni Þór Viðarsson voru gestir Tómasar Þórs Þórðarsonar í Vellinum á Símanum Sport í gær. 

Eitt af umræðuefnum Vallarins var lélegur leikur Manchester United sem tapaði 1:3 fyrir Aston Villa á Villa Park en nokkrir lykilleikmenn Manchester United voru fjarverandi, meðal annars Bruno Fernandes og Raphael Varane. 

Eiður segir mikið vanta upp á breiddina hjá United og að það vanti klárlega upp á gæði. „Það kemur í ljós um leið og tveir, þrír leikmenn detta út hversu viðkvæmir United-menn eru fyrir því.“

Umræðurn­ar um Li­verpool má sjá í heild í spil­ar­an­um hér að ofan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert