Nýliðarnir kræktu í sóknarmann

Antoine Semenyo í leik með Gana gegn Úrúgvæ á HM …
Antoine Semenyo í leik með Gana gegn Úrúgvæ á HM í Katar í síðasta mánuði. AFP/Philip Fong

Bournemouth, nýliði í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, hefur fest kaup á sóknarmanninum Antoine Semenyo frá B-deildar liði Bristol City.

Kaupverðið er tíu milljónir punda og skrifaði Semenyo, sem er 23 ára gamall Ganabúi, undir fjögurra og hálfs árs samning.

Semenyo er þriðju kaup Bournemouth í janúarglugganum en áður hafði félagið fest kaup á sóknarmanninum Dango Ouattara og markverðinum Darren Randolph.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert