Leikmaður United sefur stundum ekki

Casemiro í baráttunni við Alexis Mac Allister í gær.
Casemiro í baráttunni við Alexis Mac Allister í gær. AFP/Paul Ellis

Brasilíski knattspyrnumaðurinn Casemiro hefur ekki spilað vel með Manchester United á yfirstandandi tímabili. 

Eftir gott tímabil í fyrra þar sem Brasilíumaðurinn var lykilmaður er United hafnaði í þriðja sæti og vann deildabikarinn hefur hann ekki fundið sitt form í ár. 

Spurður út í lélega frammistöðu sína á tímabilinu sagðist Csemiro stundum ekki sofa vegna þess við ESPN í Brasilíu. 

„Ég get stundum ekki sofið því ég hugsa svo mikið. Ég vil gera betur og eitthvað öðruvísi,“ sagði Brasilíumaðurinn.

Casemiro kom til Manchester United sumarið 2022 en fyrir það lék hann lengi vel með Real Madrid. Þar var hann lykilmaður og vann allt sem hægt er að vinna. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert