Lykilmenn City ferðuðust ekki til Madrídar

Kyle Walker verður ekki með annað kvöld.
Kyle Walker verður ekki með annað kvöld. AFP/Paul Ellis

Kyle Walker og Nathan Áke verða ekki með Evrópumeisturum Manchester City gegn Real Madrid í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í fótbolta í Madríd annað kvöld. 

Ferðuðust þeir ekki með liðinu til höfuðborgar Spánar. Walker meiddist í landsleik með Englandi undir lok mars en Áke meiddist gegn Arsenal á páskadag. 

Væru þeir tveir að öllum líkindum í byrjunarliði City hefðu þeir verið heilir og því mikill missir fyrir Evrópumeistarana. 

Leikur Real og City hefst klukkan 19 annað kvöld og verður í beinni textalýsingu á mbl.is. 

Nathan Áke meiddist gegn Arsenal.
Nathan Áke meiddist gegn Arsenal. AFP/Darren Staples
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert