Þjóðverjinn reynst Skyttunum drjúgur (myndskeið)

Þjóðverjinn Kai Havertz hefur leikið vel fyrir topplið Arsenal á tímabilinu og komið að 14 mörkum með beinum hætti í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Hinn fjölhæfi Havertz hefur verið notaður í fremstu víglínu, á miðjunni og stundum sem eins konar blanda af þessu tvennu.

Hvar sem hann er á vellinum hefur Havertz tekið virkan þátt í vel smurðum sóknarleik Arsenal og skorað níu mörk ásamt því að leggja upp fimm til viðbótar.

Mörkin 14 sem Þjóðverjinn sóknarsinnaði hefur komið að í úrvalsdeildinni má sjá í spilaranum hér að ofan, en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samstarfi við Símann Sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert