Rafíþróttamaðurinn og streymirinn Nickmercs býr að fleiri en tveimur milljón áskrifendum á YouTube og nærri því fjórum milljónum á Twitch. Hann sló m.a. heimsmet í Fortnite fyrir flest teymisdráp innanleikjar og flest dráp frá tvíleik.
Nú hefur hann samstarf við Scuf Gaming og segir stuttlega frá sér og ræðir um stillingar sínar á fjarstýringum í myndbandi frá Scuf Gaming.
Fyrirtækið býður leikmönnum upp á að sérsníða bæði PlayStation- og Xbox-fjarstýringar eftir eigin þörfum, hvort sem um ræðir notkunareiginleika hennar eða útlit.
Nánar má skoða þetta hér, en myndbandið er að finna hér að ofan.