Langflestir una sér vel sem geit

Klikkaðar geitur lofa góðu og skora hátt á Epic Games, en nýjasti geitahermirinn fær 4,9 stjörnur af 5 mögulegum hjá Epic Games.

Fyrir um tveimur vikum síðan kom þriðji geitahermirinn út, Goat Simulator 3, en ólíkt fyrri leikjum býður hann upp á fjölspilun. Þá geta leikmenn slegið klaufum saman og málað bæinn rauðan.

Leikmenn gefa einkunn

Nokkur ár eru síðan geitahermirinn var fyrst gefinn út en fáir hefðu getað ímyndað sér hversu miklum vinsældum leikurinn myndi ná. Geitahermirinn fær 4,9 stjörnur af 5 á Epic Games og er einkunnin reiknuð eftir stigagjöf leikmanna.

Þá er leiknum lýst sem slakandi og skemmtilegum ásamt því að vera talinn hentugur fyrir byrjendur.

Í myndbandinu efst í fréttinni má horfa á stiklu af leiknum en hann er fáanlegur hjá Epic Games og kostar um 6.000 íslenskar krónur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert