Viðar næstmarkahæstur

Viðar Örn og félagar fagna í gærkvöld.
Viðar Örn og félagar fagna í gærkvöld. Ljósmynd/Maccabi Tel Aviv

Maccabi Tel Aviv vann góðan 2:0-heimasigur á Maccabi Petah Tikva í ísraelsku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær. Viðar Örn Kjartansson var í byrjunarliði Tel Aviv og skoraði fyrra markið á 17. mínútu.

Viðar hefur nú skorað ellefu mörk í 24 leikjum í deildinni á leiktíðinni og er hann næstmarkahæstur. Aðeins Dia Saba sem skorað hefur 18 mörk fyrir Maccabi Netanya er fyrir ofan Viðar.

Maccabi Tel Aviv er í 3. sæti deildarinnar með 55 stig, tveimur stigum minna en topplið Hapoel Be'er Sheva. Beitar er svo í 2. sæti með 56 stig og Maccabi Haifa er í 4. sæti með 52 stig, svo baráttan er jöfn um efsta sætið.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert