Riise hættur á Möltu

John Arne Riise.
John Arne Riise. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Gamli Liverpool-leikmaðurinn John Arne Riise er hættur sem yfirmaður íþróttamála hjá Birkirkara á Möltu eftir aðeins hafa gegnt starfinu í rúma fjóra mánuði.

Riise, sem lék með Liverpool frá 2001 til 2008, tók við starfinu í byrjun ársins. Hann gerði fjögurra mánaða samning en kaus að framlengja ekki samning sinn og vill nú verða þjálfari í Noregi.

„Ég er þakklátur fyrir þetta tækifæri sem ég fékk á Möltu og það leikur enginn vafi á að ég vil verða þjálfari,“ segir Riise í samtali við norska blaðið Verdens Gang en auk þess að spila með Liverpool lék Riise með Aalesund, Monaco, Roma, Fulham og APOEL.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert