Neymar fór meiddur af velli

Neymar fær aðhlynningu í kvöld.
Neymar fær aðhlynningu í kvöld. AFP

Brasilíski knattspyrnumaðurinn Neymar þurfti að fara af velli vegna meiðsla eftir aðeins 25 mínútur af leik Paris SG og Basaksehir í Meistaradeild Evrópu í kvöld. 

Neymar hefur glímt við meiðsli síðustu mánuði, bæði í baki og í kálfa en ekki er vitað hvers eðlis meiðslin sem hann varð fyrir í kvöld eru. 

Parísarliðið spjaraði sig ágætlega án Brasilíumannsins því liðið vann 2:0-sigur. Moise Keane, lánsmaður frá Everton, skoraði bæði mörk liðsins í seinni hálfleik. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert