Geitin er dauð

Hennes áttundi er farinn yfir móðuna miklu.
Hennes áttundi er farinn yfir móðuna miklu. Ljósmynd/1. FC Köln

Fyrrverandi lukkudýr þýska knattspyrnuliðsins Köln, geitin Hennes áttundi, er dauð. Hennes var lukkudýr liðsins á árunum 2008 til 2019.

Varaformaður Kölnar, Eckhard Sauren, minnist geitarinnar með hlýhug á heimasíðu félagsins: „Hennes áttundi var sérstök geit að mörgu leyti. Árið 2008 var hann kosinn lukkudýr félagsins á netinu og upplifði alls konar hæðir og lægðir á sínum 11 árum með liðinu.“

Það er ekki ofsögum sagt þar sem á þessum 11 árum féll Köln tvisvar, vann sig tvisvar upp í þýsku 1. deildina og komst einu sinni í Evrópudeildina, árið 2017, þar sem liðið spilaði til að mynda gegn enska liðinu Arsenal.

„Að komast í Evrópu þýddi að loks var geit sem gat boðið alþjóðlega gesti okkar velkomna,“ bætti Sauren við.

Hennes áttundi var orðinn 14 ára gamall og farinn að glíma við veikindi. Var því tekin ákvörðun um að svæfa hann.

Það er engin tilviljun að geit verði ávallt fyrir valinu sem lukkudýr Kölnar þar sem ein slík er áberandi á merki félagsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert