Kvennalið Chelsea í knattspyrnu er enskur bikarmeistari eftir að hafa unnið þægilegan 3:0 sigur á nágrönnum sínum í Arsenal í úrslitaleik bikarkeppninnar í knattspyrnu í dag.
Enska landsliðskonan Fran Kirby kom Chelsea á bragðið strax á þriðju mínútu.
Ástralska markamaskínan Sam Kerr tvöfaldaði forystuna eftir tæplega klukkutíma leik og hún bætti svo við öðru marki sínu og þriðja marki Chelsea á 79. mínútu.
Chelsea er þar með bikarmeistari fyrir síðasta tímabil, 2020/2021, en bikarkeppninni var frestað á síðasta tímabili vegna kórónuveirufaraldursins og ákveðið að halda henni áfram á yfirstandandi tímabili.