Víkingurinn leikmaður ársins í Bandaríkjunum

Óttar Magnús Karlsson gerði góða hluti með Oakland.
Óttar Magnús Karlsson gerði góða hluti með Oakland. Ljósmynd/KSÍ

Knattspyrnumaðurinn Óttar Magnús Karlsson er leikmaður ársins hjá bandaríska félaginu Oakland Roots.

Óttar lék með Oakland-liðinu í B-deild Bandaríkjanna á síðustu leiktíð og skoraði 19 mörk í 30 leikjum. Var hann á meðal markahæstu manna deildarinnar.

Sóknarmaðurinn er samningsbundinn Venezia á Ítalíu en hefur lítið fengið að spreyta sig hjá félaginu. Verður hann samningslaus eftir yfirstandandi tímabil.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert