Fyrsta myndbirtingin af barnsmóður sinni eftir handtökuna

Mason Greenwood hefur ekki spilað né æft með Manchester United …
Mason Greenwood hefur ekki spilað né æft með Manchester United síðan hann var handtekinn í janúar árið 2021. AFP

Knattspyrnumaðurinn Mason Greenwood birti mynd af barnsmóður sinni Harriet Robson á samfélagsmiðlinum Instagram í dag.

Þetta er í fyrsta sinn í rúmlega tvö ár sem Greenwood, sem er 22 ára gamall, birtir mynd af henni á samfélagsmiðlum síðan hann var handtekinn í janúar árið 2022 vegna gruns um heimilisofbeldi, tilraun til nauðgunar og lífslátshótanir í garð Robson.

Settur til hliðar hjá United

Málið vakti gríðarlega athygli á Englandi og var hann meðal annars settur til hliðar vegna þess hjá félagsliði sínu Manchester United og hefur hann hvorki æft né spilað fyrir félagið síðan hann var handtekinn.

Greenwood var ákærður í málinu sem var að lokum látið niður falla þar sem lykilvitni í málinu breytti framburði sínum en Greenwood og Robson eiga saman rúmlega sjö mánaða gamlan son í dag.

„Til hamingju með afmælið besta mamma. Ég elska þig,“ skrifaði Greenwood við færsluna sem hann birti af unnustu sinni og syni þeirra.

Myndin sem Greenwood birti á samfélagsmiðlinum Instagram í dag.
Myndin sem Greenwood birti á samfélagsmiðlinum Instagram í dag. Ljósmynd/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert