Alonso áhugasamari um Bayern en Liverpool

Xabi Alonso hefur náð gríðarlega góðum árangri með Leverkusen.
Xabi Alonso hefur náð gríðarlega góðum árangri með Leverkusen. AFP/Thomas Kienzle

Spænski knattspyrnustjórinn Xabi Alonso, sem hefur gert magnaða hluti með Bayer Leverkusen á Spáni, hefur meiri áhuga á að taka við Bayern München en Liverpool.

Sky greinir frá, en bæði félög hafa áhuga á þeim spænska. Jürgen Klopp hættir með Liverpool eftir leiktíðina og sömu sögu er að segja um Thomas Tuchel hjá Bayern.

Leverkusen, undir stjórn Alonsos, er í toppsæti þýsku 1. deildarinnar, með tíu stiga forskot á Bayern.

Alonso lék með bæði Liverpool og Bayern við góðan orðstír, á farsælum leikmannaferli. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert