Tvö íslensk mörk meðal þriggja bestu (myndskeið)

Sævar Atli Magnússon skoraði mark Lyngby gegn Vejle.
Sævar Atli Magnússon skoraði mark Lyngby gegn Vejle. Ljósmynd/Lyngby

Íslendingar skoruðu tvö af fallegustu mörkum 27. umferðar í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu um síðustu helgi.

Danska úrvalsdeildin hefur valið þrjú mörk úr umferðinni sem þau bestu og hægt er að velja á milli þeirra á síðu deildarinnar

Sævar Atli Magnússon skoraði mark Lyngby í jafntefli gegn Vejle, 1:1, eftir sendingu Kolbeins Birgis Finnssonar, og Orri Steinn Óskarsson skoraði þrennu fyrir FC Köbenhavn sem vann AGF 3:2. Eitt af mörkum Orra og mark Sævars eru tvö af þeim þremur sem koma til greina.

Þriðja markið sem hægt er að kjósa um skoraði svo Anders Klynge fyrir Silkeborg gegn Midtjylland.

Mörkin þrjú sem koma til greina má sjá í myndskeiðinu:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert