Egill féll úr leik gegn verðandi meistara

HM-fararnir þrír, f.v. Jón Þór, Egill Blöndal og Sveinbjörn Iura.
HM-fararnir þrír, f.v. Jón Þór, Egill Blöndal og Sveinbjörn Iura. Ljósmynd/Júdósamband Íslands

Egill Blöndal keppti í morgun í 90 kg flokki á heimsmeistaramótinu í júdó sem fram fer í Bakú. Egill mætti fyrst Qaisar Khan og vann en í annarri umferð þurfti hann að sætta sig við tap.

Egill var vel stemmdur og stjórnaði fyrri viðureigninni frá upphafi. Eftir um það bil eina og hálfa mínútu var hann búinn að sigra Qaisar en hann sótti inn í bragð sem misheppnaðist og lentu þeir í gólfglímu. Egill vann vel úr því og komst í fastatak sem Quaisar náði að losa sig úr á síðustu stundu, en Egill var ekki búinn. Hann sleppti ekki takinu á andstæðingi sínum og hélt áfram að vinna í gólfinu og náði armlás á Qaisar sem gafst þá upp. 

Næsti andstæðingur Egils var Nikoloz Sherazadishvili frá Spáni sem er í þriðja sæti heimslistans. Þar mætti Egill ofjarli sínum líkt og Sveinbjörn Iura í gær og tapaði hann þeirri viðureign eftir tæpar tvær mínútur og er fallinn úr keppni. Nikoloz varð heimsmeistari síðar um daginn eins og annar andstæðingur Sveinbjörns í -81 kg flokknum. 

Keppni Íslendinga á HM er lokið að þessu sinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert