Ótrúlegt jöfnunarmark SR (myndband)

Frá leik SR og SA
Frá leik SR og SA

SA hafði betur gegn SR í Hertz-deild karla í íshokkíi síðastliðinn þriðjudag, 4:3. Úrslitin réðust í framlengingu, en SA var með 3:2-forystu þegar tæp mínúta var eftir og var SR manni færri. 

Petr Kubos jafnaði hins vegar leikinn með ótrúlegu marki tæpum 40 sekúndum fyrir leikslok, er hann skoraði yfir allan völlinn og tryggði SR í leiðinni framlengingu og eitt stig, en bæði lið fá eitt stig, fari leikir í framlengingu.

Hér að neðan má sjá þetta magnaða mark.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert