Gólf Laugardalshallar lakkað að nýju

Svona var umhorfs þegar búið var að slípa gólfið. Lakka …
Svona var umhorfs þegar búið var að slípa gólfið. Lakka þurfti það að nýju og svo að leggja línur. mbl.is/sisi

Í sum­ar hef­ur verið unnið að lag­fær­ing­um á gólfi aðalsal­ar Laug­ar­dals­hall­ar. Nýtt par­ket var lagt í fyrra í kjöl­far heita­vatnsleka sem varð í nóv­em­ber 2020.

Gólfið var lakkað en þegar fram liðu stundir byrjaði lakkið  að flagna af. Því þurfti að slípa gólfið og lakka það að nýju. Á milli um­ferða þarf að gefa lakk­inu tíma til að þorna. Að því búnu eru lín­ur lagðar á gólfið. Það er flók­in og tíma­frek ná­kvæmn­is­vinna enda keppt í mörg­um íþrótta­grein­um í hús­inu, fyrst og fremst í hand­bolta, körfu­bolta og blaki.

Fyrirtækin Parketgæði ehf. og Horn í horn ehf. voru fengin til að slípa gólfið upp í sumar, grunna og lakka það og línumerkja.

Þar sem leggja þurfti nýtt parket var tækifærið notað til að endurnýja búnað hússins. Sett var upp ný lýsing og hljóðkerfi sem uppfyllir nútímakröfur við íþróttakeppni og notkun hússins sem fjölnotahúss. Húsið var tilbúið til notkunar í fyrrahaust og varð að nýju vettvangur landsleikja í innanhússíþróttum.

Að sögn Birgis Bárðarsonar framkvæmdastjóra Laugardalshallarinnar er stefnt að því að húsið komist í gagnið fyrir mánaðamót. Mikið er um að vera í húsinu í ágústmánuði. Má þar þar nefna að skráningahátíð fyrir Reykjavíkurmaraþon var í frjálsíþróttasalnum og 31. ágúst hefst iðnaðarsýning, sem einnig verður í frjálsíþróttasalnum.

Enda þótt hlé hafi orðið á kappleikjahaldi vegna heitavatnsleikans gegndi Laugardalshöll mikilvægu hlutverki í baráttunni gegn Covid-19. Mánuðum saman fóru fram fjöldabólusetningar í Höllinni.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert