Leikmaður Einherja lést af slysförum

Violeta Mitul.
Violeta Mitul.

Ungmennafélagið Einherji á Vopnafirði hefur gefið út fréttatilkynningu, í kjölfar þess að greint var frá andláti ungrar konu við höfn sveitarfélagsins á mánudag.

„Það er með djúpri sorg í hjarta sem við tilkynnum um sviplegt fráfall leikmanns okkar, liðsfélaga og vinkonu, Violetu Mitul, sem lést af slysförum aðfaranótt 4. september, aðeins 26 ára gömul. Samfélagið á Vopnafirði er harmi slegið,“ segir í tilkynningu félagsins sem fer í heild sinni hér á eftir:

„Violeta, sem fæddist 3. apríl 1997 í Moldóvu, gekk til liðs við Einherja í vor og gegndi lykilhlutverki í liði meistaraflokks kvenna í sumar. Violeta var góðhjörtuð, dugleg og brosmild. Hún var traustur liðsmaður og fyrirmyndar fótboltakona.

Andlát hennar er okkur öllum mikið áfall og skarðið sem hún skilur eftir sig stórt. Hugur okkar er hjá liðsfélögum hennar og þjálfurum sem syrgja traustan Einherja.

Fjölskyldu Violetu, þeim Alexandru, Mariu, Veaceslav og Juliu sendum við okkar dýpstu samúðarkveðjur. Á svo hörmulegri stundu eru engin orð eða gjörðir sem græða sárið sem missirinn skilur eftir sig en við munum gera það sem í okkar valdi stendur til að létta undir með fjölskyldu og vinum sem eiga um sárt að binda á þessum sorgartímum.“

Söfnunarreikningur fyrir fjölskyldu Violetu hefur verið stofnaður í nafni félagsins:

Kt. 610678-0259
Rnr. 0178-05-000594

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert