Golf: Snorri Páll Íslandsmeistari 14-15 ára

Snorri Páll Ólafsson úr GR.
Snorri Páll Ólafsson úr GR. mbl.is

Snorri Páll Ólafsson, GR, varð í dag Íslandsmeistari í flokki 14-15 ára kylfinga en Íslandsmótið fór fram á Hólmsvelli í Leyru á Reykjanesi. Snorri Páll lék þrjá hringi á samtals 234 höggum, eða 18 höggum yfir pari. Í öðru sæti varð Pétur Freyr Pétursson, GR, á 236 höggum og Axel Ásgeirsson, GR, varð þriðji á 240 höggum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert