Scott hafði betur gegn Els á þriðju holu í bráðabana

Adam Scott.
Adam Scott. Reuters

Adam Scott hafði betur í baráttunni gegn Ernie Els á Singapúr mótinu í golfi á Asíumótaröðinni í dag. Scott og Els voru jafnir eftir þriðju umferð en fjórða umferð var felld niður vegna veðurs. Þeir fóru því í bráðabana um sigurinn þar sem að Scott hafði betur á þriðju holu. Els og Scott höfðu leikið 8 holur og voru jafnir á 10 höggum undir pari þegar ákveðið var að aflýsa lokahringnum vegna veðurs. Þetta er fyrsti sigur Scott frá því á þessu móti fyrir ári síðan og í fyrsta sinn sem hann nær að verja titil sem atvinnumaður á þeim 10 mótum sem hann hefur unnið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert