Fyrrverandi leikmaður Lakers látinn 33 ára

Darius Morris er látinn.
Darius Morris er látinn. Ljósmynd/LA Lakers

Bandaríski körfuboltamaðurinn Darius Morris er látinn, en hann var aðeins 33 ára gamall. Morris lék m.a. með stórliðinu Los Angeles Lakers í NBA-körfuboltanum.

Hann var valinn af Lakers í nýliðavalinu árið 2011 og lék í tvö ár með liðinu í borg englanna. Lék hann einnig með Philadelphia 76ers, LA Clippers, Memphis Grizzlies og Brooklyn Nets, alls 132 leiki í NBA.

Miðlar vestanhafs hafa ekki greint frá dánarorsökum leikmannsins en TMZ segir að hann hafi fundist látinn í nágrenni við Los Angeles.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert