Sviptingar hjá Birgi í Madrid

Birgir Leifur Hafþórsson.
Birgir Leifur Hafþórsson. Reuters.

Birgir Leifur Hafþórsson endaði á tveimur höggum undir pari á Madridar-meistaramótinu í golfi en hann lék á einu höggi undir pari á lokadeginum í dag. Það er óhætt að segja að það hafi verið sviptingar á lokahringnum í dag þar sem Birgir fékk fjóra fugla, einn örn, tvo skolla og hann lék eina holu á þremur yfir pari. Birgir er í 43. sæti þessa stundina og fær hann um 450.000 kr. í verðlaunafé fyrir árangurinn.

Skorkort Birgis.

Staðan á mótinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert