Guðrún lék með Evrópuliðinu í Katar

Guðrún Brá Björgvinsdóttir.
Guðrún Brá Björgvinsdóttir.

Kylfingurinn Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Keili keppti með Evrópuliðinu í Patsy Hankins-bikarnum sem fram fór 8.-10. mars sl. Mótið fór fram í Katar og er tileinkað Patsy Hankins sem fæddist árið 1945 en hún lést árið 2015. Hún var frumkvöðull í kvennagolfinu á Nýja-Sjálandi.

Í Patsy Hankins-mótinu keppa tvö lið skipuð áhugakylfingum, lið Evrópu lék gegn sameiginlegu liði leikmönnum frá Asíu-Kyrrahafseyjum.

Evrópuliðið átti undir högg að sækja frá upphafi í þessari keppni og sigraði Asíu-Kyrrahafsliðið örugglega með 23,5 vinningum gegn 8,5 vinningum Evrópuliðsins.

Guðrún Brá lék í þremur leikjum af alls fimm hjá Evrópuliðinu. Hún náði ekki að landa sigri en var hársbreidd frá því að vinna sinn leik í lokaumferðinni gegn Du Mohan frá Kína.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert