Á meðal 50 efstu í Finnlandi

Guðrún Brá Björgvinsdóttir hafnaði í 50. sæti.
Guðrún Brá Björgvinsdóttir hafnaði í 50. sæti. mbl.is/Kristinn Magnússon

Íslandsmeistarinn Guðrún Brá Björgvinsdóttir hafnaði í 50. sæti á Gant Ladies Open-mótinu í Finnlandi um helgina. Mótið er hluti af Evrópumótaröðinni í golfi.

Guðrún náði sér ekki almennilega á strik á fyrsta hring er hún lék á 77 höggum en hún lék síðustu tvo hringina á 74 höggum og bætti stöðu sína. Hún lauk leik á 12 höggum yfir pari.

Heimakonan Matilda Castren hafði yfirburði og vann á fimm höggum undir pari, en aðeins sex kylfingar léku undir pari á mótinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert