Stjarnan tryggði sér heimaleikjarétt

Karen Helga Díönudóttir var markahæst hjá deildarmeisturum Hauka í kvöld.
Karen Helga Díönudóttir var markahæst hjá deildarmeisturum Hauka í kvöld. Ómar Óskarsson

Síðasta umferð Olísdeildar-kvenna í handknattleik fór fram í kvöld og nú er því ljóst hvernig endanleg röðun liðanna verður.

Haukar sem áður höfðu tryggt sér deildarmeistaratitilinn unnu öruggan sigur á HK, sem endaði í níunda sæti deildarinnar. Grótta endaði í öðru sæti og vann stórsigur á Aftureldingu í síðasta leik, 35:17, en Afturelding endaði á botninum ásamt FH sem tapaði fyrir Selfossi, 26:23.

Þá vann Fylkir sigur á ÍR 27:21 og er síðasta liðið í úrslitakeppnina. Þá vann ÍBV lið Fjölnis 31:28, en ekki hefur borist skýrsla úr leik KA/Þórs og Stjörnunnar. Lokatölur þar urðu hins vegar 31:23 fyrir Stjörnunni.

Lokastaðan: Haukar 46, Grótta 43, Fram 41, Stjarnan 40, Valur 38, ÍBV 37, Selfoss 27, Fylkir 26, HK 15, Fjölnir 12, KA/Þór 11, ÍR 10, Afturelding 9, FH 9.

Úrslit og markaskorara úr leikjum kvöldsins má sjá hér að neðan.

Fram – Valur 22:19 (10:11)

Sjá HÉR

Haukar – HK 29:17 (13:9)

Mörk Hauka: Karen Helga Díönudóttir 8, Ragnheiður Sveinsdóttir 4, Maria Karlsdóttir 3, Anna Liljan Þrastardóttir 3, Vilborg Pétursdóttir 3, Maria Da Silva 2, Agnes Ósk Egilsdóttir 2, Ragnheiður Ragnarsdóttir 1, Erla Eiríksdóttir 1, Viktoría Valdimarsdóttir 1, Jóna Sigríður Halldórsdóttir 1.
Mörk HK: Þórhildur Braga Þórðardóttir 5, Berglind Þorsteinsdóttir 4, Emma Havin Sardarsdóttir 2, Kolbrún Arna Garðarsdóttir 2, Birta Rún Grétarsdóttir 1, Ada Kozica 1, Eva Arinbjarnar 1.

ÍR – Fylkir 21:27 (8:18)

Mörk ÍR: Sólveig Lára Kristjánsdóttir 7, Brynhildur Bergmann Kjartansdóttir 6, Silja Ísberg 3, Karen Tinna Demian 1, Sigrún Ása Ásgrímsdóttir 1, Hildur María Leifsdóttir 1, Þorbjörg Anna Steinarsdóttir 1, Jóhanna Björk Viktorsdóttir 1.
Mörk Fylkis: Patricia Szölösi 10, Þuríður Guðjónsdóttir 7, Hildur Björnsdóttir 3, Thea Imani Sturludóttir 3, Ólöf Kristín Þorsteinsdóttir 2, Kristjana Björk Steinarsdóttir 2.

Afturelding – Grótta 17:35 (3:15)

Mörk Aftureldingar: Thelma Rut Frímannsdóttir 4, Þóra María Sigurjónsdóttir 3, Dagný Huld Birgisdóttir 3, Magnea Rós Svavarsdóttir 2, Rakel Dóra Sigurðardóttir 2, Ingibjörg Bergrós Jóhannesdóttir 1, Vigdís Brandsdóttir 1, Alda Björk Egilsdóttir 1.
Mörk Gróttu: Eva Björk Davíðsdóttir 9, Laufey Ásta Guðmundsdóttir 5, Eva Margrét Kristinsdóttir 4, Anna Kristín Stefánsdóttir 4, Edda Þórunn Þórarinsdóttir 4, Sunna María Einarsdóttir 3, Lovísa Thompson 2, Arndís María Erlingsdóttir 2, Unnur Ómarsdóttir 1, Þórunn Friðriksdóttir 1.

Fjölnir – ÍBV 28:31 (13:16)

Mörk Fjölnis: Díana Sigmarsdóttir 8, Berglind Benediktsdóttir 7, Tinna Laxdal Gautadóttir 4, Guðrún Jenný Sigurðardóttir 3, Ólöf Ásta Arnþórsdóttir 2, Andrea Björk Harðardóttir 2, Helena Ósk Kristjánsdóttir 1, Díana Ágústsdóttir 1.
Mörk ÍBV: Ester Óskarsdóttir 7, Kristrún Ósk Hlynsdóttir 6, Vera Lopes 4, Ásta Björt Júlíusdóttir 4, Sandra Dís Sigurðardóttir 3, Telma Amado 3, Þóra Guðný Arnarsdóttir 3, Selma Rut Sigurbjörnsdóttir 1.

Selfoss – FH 26:23 (16:14)

Mörk Selfoss: Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir 11, Elena Birgisdóttir 4, Adina Maria Ghidoarca 4, Carmen Palamariu 3, Kristrún Steinþórsdóttir 2, Perla Ruth Albertsdóttir 2.
Mörk FH: Elín Anna Baldursdóttir 7, Steinunn Snorradóttir 7, Sigrún Jóhannsdóttir 3, Sara Kristjánsdóttir 3, Jóhanna Helga Jensdóttir 2, Hildur Marín Andrésdóttir 1.

KA/Þór – Stjarnan 23:31 (13:14)

Mörk KA/Þórs: Birta Fönn Sveinsdóttir 9, Arna Kristín Einarsdóttir 4, Ásdís Guðmundsdóttir 4, Steinunn Guðjónsdóttir 3, Hulda Bryndís Tryggvadóttir 2, Laufey Lára Höskuldsdóttir 1.
Mörk Stjörnunnar: Hanna Guðrún Stefánsdóttir 10, Helena Rut Örvarsdóttir 7, Sólveig Lára Kjærnested 4, Þórhildur Gunnarsdóttir 2, Sandra Rakocevic 2, Rakel Dögg Bragadóttir 2, Kolbrún Gígja Einarsdóttir 2, Nataly Sæunn Valencia 1, Arna Dyrfjörð 1.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert