„Ég vona það besta“

Ólafur Gústafsson.
Ólafur Gústafsson. Ljósmynd/kif.dk

„Við fyrstu skoðun kom ekki í ljós neitt brot eða krossbandaslit. Hnéskelin fór úr liði en var komið aftur á sinn stað úti á vellinum. Ég fer í myndatöku í kvöld og vona það besta,“ sagði landsliðsmaðurinn Ólafur Gústafsson í samtali við mbl.is í morgun en hann meiddist illa á hné í leik með Kolding gegn Mors-Thy í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik í gærkvöld.

Ólafur var fluttur á sjúkrahús og gisti á hóteli í Kolding í nótt þar sem hann fer í myndatöku í kvöld en Ólafur býr í Esbjerg.

„Væntanlega verð ég frá keppni í einhvern tíma en ég ætti að fá svör við því í kvöld eftir myndatökuna,“ sagði Ólafur.

Hætt er við því að Ólafur missi af fjögurra þjóða mótinu í Noregi sem fer fram í Noregi í byrjun apríl en hann var valinn í landsliðshóp Guðmundar Þórðar Guðmundssonar í síðustu viku. Ólafur gekk til liðs við Kolding frá Stjörnunni í haust og hefur átt góðu gengi að fagna með Kolding á leiktíðinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert