Ragnar Jóhannsson var markahæsti leikmaður Hüttenberg í dramatískum 23:22-heimasigri á Dessauer í þýsku B-deildinni í handbolta í dag. Ragnar lagði upp sigurmarkið á lokasekúndunum og skoraði hann auk þess fimm mörk úr sex skotum.
Aron Rafn Eðvarðsson átti ágætan leik fyrir Hamburg sem mátti þola 25:31-tap fyrir Grosswallstadt á útivelli. Aron varði tíu skot og spilaði nánast allan leikinn.
Hüttenberg er í 10. sæti deildarinnar með 18 stig eftir 18 leiki, en Hamburg er í 14. sæti með 14 stig.