Noregur örugglega á HM

Þórir Hergeirsson er kominn á HM með norska landsliðið.
Þórir Hergeirsson er kominn á HM með norska landsliðið. AFP

Þórir Hergeirsson og lærikonur hans í norska kvennalandsliðinu í handknattleik eru komnar í lokakeppni HM 2019 sem fram fer í Japan eftir þriggja marka sigur gegn Hvíta-Rússlandi í Noregi í dag.

Leiknum lauk með 31:28-sigri Noregs en fyrri leik liðanna í Hvíta-Rússlandi lauk með þrettán marka sigri norska liðsins,  34:21. Sigur norska liðsins var aldrei í hættu en staðan í hálfleik var 21:11, norska liðinu í vil. 

HM 2019 hefst í lok nóvember en Þórir Hergeirsson hefur stýrt norska landsliðinu frá árinu 2009. Þórir hefur þrívegis gert Noreg að Evrópumeisturum og þá varð liðið heimsmeistari undir hans stjórn árin 2011 og 2015.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert