Í liði umferðarinnar í Frakklandi

Ólafur Andrés Guðmundsson (t.v) og Kristján Örn Kristjánsson (t.h) hita …
Ólafur Andrés Guðmundsson (t.v) og Kristján Örn Kristjánsson (t.h) hita upp á landsliðsæfingu í desember á síðasta ári. mb.is/Kristinn Magnússon

Kristján Örn Kristjánsson átti stórleik fyrir Aix sem heimsótti Frakklandsmeistara PSG í fyrstu umferð frönsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik um helgina.

Leiknum lauk með 34:31-sigri PSG en Kristján gerði sér lítið fyrir og skoraði sjö mörk úr níu skotum og var markahæsti leikmaður Aix í leiknum.

Frammistaða Kristjáns í leiknum skilaði honum sæti í liði umferðarinnnar hjá franska miðlinum L'Équipe en stórstjarna PSG, Nikola Karabatic, fékk einnig sæti í liðinu fyrir frammistöðu sína í leiknum.

Umfjöllun L'Équipe má sjá með því að smella hér.

Ljósmynd/Twitter
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert