Skoraði átta mörk í Evrópudeildinni

Óðinn Þór Ríkharðsson átti stórleik í Frakklandi.
Óðinn Þór Ríkharðsson átti stórleik í Frakklandi. mbl.is/Kristinn Magnússon

Óðinn Þór Ríkharðsson átti stórleik fyrir Kadetten þegar liðið heimsótti Montpellier í A-riðli Evrópudeildarinnar í handknattleik í Frakklandi í kvöld.

Leiknum lauk með fjögurra marka sigri Montpellier, 40:36, en Óðinn var markahæsti leikmaður svissneska liðsins með átta mörk úr 11 skotum.

Kadetten, undir stjórn Aðalsteins Eyjólfssonar, er með átta stig í þriðja sæti riðilsins, tveimur stigum minn en Göppingen sem er í öðru sætinu.

Þá töpuðu Hannes Jón Jónsson og lærisveinar hans í Alpla Hard með fimm marka mun gegn Sporting, 26:31, C-riðli keppninnar í Austurríki.

Alpla Hard er í neðsta sæti riðilsins með eitt stig, fimm stigum minna en Skjern, sem er í fjórða sætinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert