Washington Capitals vann í fyrsta sinn

Dmitry Orlov, Alex Ovechkin og Evgeny Kuznetsov, leikmenn Washington Capitals, …
Dmitry Orlov, Alex Ovechkin og Evgeny Kuznetsov, leikmenn Washington Capitals, glaðir í bragði eftir sigurinn í NHL-deildinni í nótt. Ovechkin, sá í miðjunni, var valinn besti leikmaður úrslitakeppninnar. AFP

Washington Capitals vann í nótt Stanley-bikarinn eftir að liðið vann fimmtu viðureign sína við Las Vegas Golden Knights, 4:3, og einvígi liðanna um sigurlaunin í NHL-deildinni í íshokkí í Bandaríkjunum. Leikið var í Las Vegas. 

Þetta er í fyrsta sinn sem Washington Capitals vinnur Stanley-bikarinn í 44 ára sögu sinni en liðið var með nokkra yfirburði í rimmunni við Las Vegas Golden Knights að þessu sinni og hafði betur í fjórum af fimm viðureignum. Um leið eru 26 ár liðin síðan eitthvert lið frá Washington vann einn af stóru titlunum í bandarískum íþróttum eða allt frá því Washington Redskins vann NFL-deildina, eða Super Bowl, 1992.

Alex Ovechkin, fyrirliði Washington Capitals, varð þar með fyrsti íshokkímaðurinn sem er borinn og barnfæddur Rússi, til þess að taka við Stanley-bikarnum í leikslok. Hann var einnig valinn besti leikmaður úrslitakeppninnar og fékk að launum bikar sem kendur er við Conn Smythe. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert