ÍR-ingur aðstoðar KR-inga

Rimma ÍR og KR heldur áfram annað kvöld þegar fjórði …
Rimma ÍR og KR heldur áfram annað kvöld þegar fjórði leikurinn fer fram í Seljaskóla. mbl.is/Hari

Einn leikjahæsti leikmaður ÍR í meistaraflokki í boltagreinum er í baklandi KR-inga nú þegar ÍR og KR berjast um Íslandsmeistaratitil karla í körfuknattleik. 

Brynjar Steinarsson í leik með ÍR.
Brynjar Steinarsson í leik með ÍR. mbl.is/Golli

Styrktarþjálfari KR-liðsins í vetur er Brynjar Steinarsson sem lék handknattleik í meistaraflokki ÍR í tæpa tvo áratugi, ef frá eru talin þrjú ár í Danmörku. Brynjar var raunar einnig styrktarþjálfari KR-inga þegar þeir urðu Íslandsmeistarar í fyrra. 

Brynjar lék með meistaraflokki ÍR frá 1996 til 2003 og aftur frá 2006 til 2016 eftir Danmerkurdvölina. 

Ægir Þór Steinarsson í leik með Stjörnunni á móti ÍR …
Ægir Þór Steinarsson í leik með Stjörnunni á móti ÍR í úrslitakeppninni. mbl.is/Árni Sæberg

Brynjar er sjálfsagt í snúinni stöðu nú þegar spennan nálgast suðumark í úrslitarimmu ÍR og KR. ÍR sló Stjörnuna út í undanúrslitum keppninnar.

Hefði farið svo að deildar- og bikarmeistarar Stjörnunnar hefðu unnið ÍR og komist í úrslitin gegn KR þá hefði Brynjar ekki síður verið í snúinni stöðu. Leikstjórnandi Stjörnunnar, Ægir Þór Steinarsson, er bróðir hans. Ægir er hins vegar uppalinn í Fjölni. 

ÍR-ingar eru sjálfir ekki illa staddir varðandi styrktarþjálfun. Um þann þátt hjá karlaliðinu í körfuknattleik sér kúluvarparinn og ólympíufarinn Óðinn Björn Þorsteinsson. 

ÍR og KR eigast við í fjórða leik liðanna í úrslitarimmunni í Breiðholti annað kvöld. ÍR er 2:1 yfir en vinna þarf þrjá leiki til að verða meistari. 

ÍR-ingurinn Óðinn Björn Þorsteinsson.
ÍR-ingurinn Óðinn Björn Þorsteinsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert