Keflavík skrefinu á undan Álftanesi

Dúi Þór Jónsson úr Álftanesi með boltann. Sigurður Pétursson verst …
Dúi Þór Jónsson úr Álftanesi með boltann. Sigurður Pétursson verst honum. Eggert Jóhannesson

Keflavík er komin í 1:0 í einvígi sínu gegn Álftanesi í átta liða úrslitum Íslandsmóts karla í körfubolta eftir 99:92-heimasigur í fyrsta leik liðanna í kvöld.

Keflvíkingar náðu forskotinu snemma leiks og var staðan eftir fyrsta leikhluta 24:20 og 51:37 í hálfleik.

Keflavík vann svo þriðja leikhlutann með þremur stigum og var það of mikill munur fyrir Álftanes að brúa í fjórða og síðasta leikhlutanum.

Remy Martin skoraði 19 stig í jöfnu liði Keflavíkur. Sigurður Pétursson gerði 17 stig.

Ville Tahvanainen og Douglas Wilson gerðu 21 stig hvor fyrir Álftanes, sem var að leika í úrslitakeppninni í fyrsta skipti.  

Keflavík 99:92 Álftanes opna loka
99. mín. skorar
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert