Njarðvíkingurinn fór á kostum

Elvar Már Friðriksson var frábær í dag.
Elvar Már Friðriksson var frábær í dag. Ljósmynd/FIBA

Elvar Már Friðriksson átti stórleik fyrir PAOK þegar liðið tók á móti Karditsas í efstu deild Grikklands í körfuknattleik í dag.

Leiknum lauk með fimmtán stiga sigri PAOK, 85:70, en Elvar Már skoraði 17 stig, tók þrjú fráköst og gaf tvær stoðsendingar á þeim 35 mínútum sem hann lék. 

Njarðvíkingurinn var næststigahæstur í sínu liði en PAOK er áttunda sæti deildarinnar með 35 stig, sex stigum frá fallsæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert