Stærsti útgáfumánuður krónubréfa

mbl.is/Júlíus

Aldrei hafa verið gefin út krónbréf fyrir hærri upphæð en nú í janúarmánuði. Í gær gaf Ameríski þróunarbankinn  út krónubréf fyrir 17 milljarða króna og hafa þá alls verið gefin út krónubréf fyrir 76 milljarða króna frá áramótum.

Frá því að útgáfa krónubréfa hófst í ágúst 2005 hefur aldrei verið gefið út fyrir jafn háa upphæð innan eins mánaðar og nú, samkvæmt Morgunkorni Glitnis.

„Útgáfa ameríska þróunarbankans í gær lokaði jafnfram bilinu á milli gjalddaga og nýrra útgáfu innan mánaðarins. Alls gjaldféllu krónubréf að nafnvirði 65 ma. króna að viðbættum vöxtum á gjalddaga innan mánaðarins.

 Að september síðastliðnum  undanskildum er janúar stærsti gjalddagamánuður frá upphafi. Frá því í ágúst 2005 hafa nú verið gefin út krónubréf fyrir rúmlega 650 ma.kr. Þar af eru ríflega 382 ma.kr. enn útistandandi, sem er svipuð staða og síðastliðið vor," samkvæmt Morgunkorni Glitnis.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK