Þrotabú Fons, félags athafnamannsins Pálma Haraldssonar, verður upp á röska 20 milljarða króna skv. heimildum fréttastofu RÚV og greint var frá í morgunfréttum.
Kröfulýsingafrestur rennur út á mánudag en þegar hafa Glitnir, Landsbankinn og Kaupþing í Lúxemborg lýst kröfu í búið. Flestar eignir þess eru veðsettar, samkvæmt heimildum fréttastofu RÚV. Öryggisfyrirtækið Securitas er á meðal stærstu eigna Fons.