Tvöföldun á flugferðum easyJet til Íslands

Frá fundinum í morgun.
Frá fundinum í morgun. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Breska flugfélagið easyJet mun rúmlega tvöfalda fjölda flugferða sinna til Íslands á næstunni, en með þessu skrefi verður félagið næst stærst í flugleiðum til Íslands á komandi vetri. Búist er við að félagið muni á næsta ári flytja um fjögur hundruð þúsund farþega til og frá landinu.

Genf og Belfast nýir áfangastaðir

Flugfélagið hyggst hefja beint áætlunarflug frá Íslandi til Gatwick-flugvallar í London, Genfar í Sviss og Belfast á Norður-Írlandi. Til viðbótar flýgur félagið til fimm áfangastaða í dag og verða þeir því orðnir samtals átta með fjölguninni.

Sala flugmiða til allra áfangastaðanna hófst kl.6 í morgun á heimasíðu félagsins, easyJet.com, en flugið til Gatwick og Genfar hefst í lok október og til Belfast í desember. Nýju flugleiðirnar þrjár verða starfræktar allt árið um kring.

Úr 52 flugum í 110 á mánuði

Fyrir flýgur félagið til London Luton, Bristol, Manchester, Edinborgar í Skotlandi og Basel í Sviss. Umsvif easyJet hafa stóraukist frá því að félagið hóf að fljúga héðan árið 2012 til Lundúna en alls eru nú floginn 13 flug á viku héðan með easyJet eða 52 flug á mánuði.  Þegar Belfast flugið fer af stað í desember verða mánaðarlegar brottfarir félagsins 100 talsins.

Frá og með febrúar næstkomandi eykst tíðnin til London Luton og Manchester og þá verða brottfarir easyJet frá Íslandi orðnar 110 í hverjum mánuði Nú í júlímánuði eru þær 52 þannig að um ríflega tvöföldun er að ræða. .Þetta þýðir að easyJet verður næst umsvifasta flugfélagið í áætlunarflugi til og frá Íslandi yfir vetrartímann

Belfast er höfuðborg Norður-Írlands og um er að ræða nýjan áfangastað frá Íslandi. Frá Belfast-flugvelli flýgur easyJet til 26 borga á Bretlandseyjum og meginlands Evrópu. Genf er höfuðborg Sviss og er vel þekkt viðskiptaborg og ferðamannastaður. Flugleiðin bætist við það flug sem þegar er í boði á milli Genfar og Keflavíkur, en þetta verður í fyrsta sinn sem boðið er upp á heilsársflug þangað frá Íslandi. Gatwick hefur verið þekkt meðal íslendinga í langan tíma, en það er einn af flugvöllum London.

Horfa til efnaðri ferðamanna

Ali Gayward, framkvæmdastjóri easyJet í Bretlandi, segir í tilkynningu að horft sé til efnaðri ferðamanna varðandi flug til Íslands. „Við viljum vinna með Íslendingum að því hvernig megi best stýra ferðamannastrauminum hingað til lands. Við höfum skoðað bakgrunn þeirra sem ferðast með easyJet til Íslands og við sjáum að landið höfðar einna helst til ferðamanna með rúm fjárráð, enda er Ísland ekki ódýr áfangastaður,“ segir Gayward.

Þessar nýju flugleiðir easyJet eru enn ein stoðin undir vetrarferðamennsku á Íslandi og mun hjálpa til við að dreifa ferðamönnum utan háannatímans. Sömuleiðis eru þetta jákvæðar fréttir varðandi nýtingu flugstöðvarinnar en flug easyJet eru yfirleitt að koma og fara rétt utan við þann tíma dags sem mestar annir eru á flugvellinum,“ segir Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia.

easyJet mun fjölga flugferðum sínum til Íslands í vetur og …
easyJet mun fjölga flugferðum sínum til Íslands í vetur og á næsta ári mun flugfélagið fljúga 110 sinnum á mánuði hingað til lands. AFP
Með fjölguninni verður easyJet með næst flestar ferðir hingað til …
Með fjölguninni verður easyJet með næst flestar ferðir hingað til lands í vetur á eftir Icelandair.
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK