Síminn semur um viðskiptavakt

Orri Hauksson hringir Símann inn í Kauphöllinna í gær.
Orri Hauksson hringir Símann inn í Kauphöllinna í gær. mbl.is/Golli

Síminn hf. hefur gert samning við Landsbankann hf. um viðskiptavakt með hlutabréfum útgefnum af Símanum hf. sem skráð eru á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.

Tilgangur samningsins er að efla viðskipti með hlutabréf félagsins í Nasdaq Iceland í því skyni að seljanleiki hlutabréfa félagsins aukist, markaðsverð skapist og verðmyndun hlutabréfanna verði með skilvirkum og gagnsæjum hætti.

Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar. 

Samningurinn kveður á um að Landsbankinn skuli fyrir eigin reikning leggja fram kaup- og sölutilboð í hlutabréf Símans hf. á hverjum viðskiptadegi Nasdaq Iceland.

Fjárhæð kaup- og sölutilboða skal vera að lágmarki 5.000.000 hlutir. Tilboð skulu endurnýjuð eins fljótt og unnt er, þó ávallt innan 10 mínútna eftir að þeim er tekið að fullu.

Hámarksmagn sem Landsbankinn er skuldbundinn til að kaupa eða selja á hverjum degi eru 35.000.000 hlutir.

Landsbankinn tryggir að verðbil milli kaup- og sölutilboða sem sett eru fram í viðskiptavakt nemi að hámarki 1,5% og að frávik þeirra frá síðasta viðskiptaverði sama dags sé ekki meira en 3%.

Ef verðbreyting á hlutabréfum Símans innan dags nær 10% er Landsbankanum heimilt að tvöfalda hámarks verðbil milli kaup- og sölutilboða tímabundið þann dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK