Hefur ekki áhrif á kaup Teva á Allergan

Höfuðstöðvar Allergan í Hafnarfirði.
Höfuðstöðvar Allergan í Hafnarfirði.

Samruni Allergan og bandaríska lyfjafyrirtækisins Pfizer hefur ekki áhrif á fyrirhuguð kaup Teva á samheitalyfjahluta fyrirtækisins sem tilkynnt var um í júlí á þessu ári. Samheitalyfjahluti fyrirtækisins starfar að mestu undir nafni Actavis víða um heim, þar á meðal á Íslandi, en hér á landi er fyrst og fremst starfsemi á sviði samheitalyfja.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Allergan en greint var frá því í dag að samkomulag hefði náðst um fyrrnefndan samruna. Samrun­inn er met­inn á 160 millj­arða doll­ara eða um 21 þúsund millj­arða króna. Sam­einað fyr­ir­tæki verður stærsti lyfja­fram­leiðandi heims.

Eins og fram hefur komið er gert ráð fyrir að fyrirhuguð kaup Teva á Actavis, samheitalyfjahluta Allergan, gangi í gegn á fyrsta ársfjórðungi 2016, en að samruni Pfizer og frumlyfjahluta Allergan gangi í gegn um mitt ár 2016.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK