Isavia fær ekki álit EFTA

Aðalheiður Héðinsdóttir, forstjóri Kaffitárs.
Aðalheiður Héðinsdóttir, forstjóri Kaffitárs. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Ekki verður leitað ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins í máli Kaffitárs og Isavia samkvæmt úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur sem féll á föstudag. Isavia fór fram á álitið og hefur lögmaður fyrirtækisins ekki ákveðið hvort úrskurðurinn verði kærður til Hæstaréttar. Kærufresturinn er tvær vikur.

Isavia vildi fá álit EFTA um samkeppnislöggjöf svæðisins þar sem fyrirtækið hefur talið það varða samkeppnishagsmuni fyrirtækjanna er tóku þátt í forvalinu um verslunarrými í flugstöð Leifs Eiríkssonar að birta Kaffitári tilteknar upplýsingar úr því.

Úrsk­urðar­nefnd upp­lýs­inga­mála hef­ur áður kom­ist að þeirri niður­stöðu að Isa­via beri að af­henda Kaffitári gögn­in. Rökin nefndarinnar voru að fyr­ir­tæk­in sem tóku þátt hafi engan rök­stuðning fengið fyr­ir ein­kunna­gjöf­inni sem réði því hvort þau fengju versl­un­ar­pláss. Til þess að geta áttað sig á rök­semd­un­um hafi fyr­ir­tæk­inu verið nauðsyn­legt að sjá sam­an­b­urðinn.

Kaffitár leitaði í kjölfarið til sýslu­manns­ins á höfuðborg­ar­svæðinu og krafðist þess að gögnin yrðu sótt með aðför.

Isavia svaraði því með að höfða ógild­ing­ar­mál vegna niður­stöðu nefndarinnar.

Ósk Isavia um flýtimeðferð málsins hefur áður verið hafnað í héraði og Hæstarétti.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK