Verðmæti Nintendo rokið upp um 65%

AFP

Hluthafar Nintendo valhoppa eflaust hraðar um en Pokémon-spilarar um þessar mundir þar sem hlutabréf fyrirtækisins hafa hækkað um 65 prósentustig á liðinni viku. Hlutabréf Nintendo ruku upp um önnur þrettán prósentustig í kauphöllinni í Tókýó í gær eftir stanslausar hækkanir í liðinni viku.

Þessar hækkanir má rekja beint til Pokémon-snjallsímaforrits sem kom út í síðustu viku og hefur notið gífurlegra vinsælda. Nýir notendur bætast við á hverjum degi og hafa fleiri náð í þetta nýja forrit en Tinder svo dæmi sé tekið auk þess sem notendafjöldinn nálgast Twitter.

Frétt mbl.is: Pokémon stærri en Tinder

Í frétt CNN Money er bent á að þennan æsing fjárfesta megi rekja til allra aukahlutanna í leiknum sem hægt er að kaupa. Nú er búið að smala milljónum notenda saman í ókeypis leik og næsta skref er að fá þá til að eyða peningnum í leiknum. Stórgróði gæti því verið fram undan hjá Nintendo. 

Nintendo á að hluta fyrirtækið sem þróaði leikinn, Niantic, og varði um tuttugu milljónum dollara í þróunarkostnað þess á síðasta ári. Þá á Nintendo einnig hlut í öðru fyrirtæki er nefnist Pokemon Company og sér um sölu á samnefndum spilum og öðrum varningi tengdum leiknum.

Móðurfélag Google, Alphabet, á einnig hlut í Niantic.

Maður spilar Pokémon Go fyrir utan höfuðstöðvar Nintendo í New …
Maður spilar Pokémon Go fyrir utan höfuðstöðvar Nintendo í New York. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK