Eik í stað HB Granda

Eik fasteignafélag
Eik fasteignafélag

Eik fasteignafélag kemur inn í OMX Iceland 8 vísitölu kauphallarinnar um áramót í stað HB Granda.  OMX Iceland 8 vísitalan er endurskoðuð tvisvar á ári. Endurskoðuð samsetning tekur gildi 2. janúar 2017.

Samsetning OMXI8 vísitölunnar frá og með 2. janúar 2017 verður eftirfarandi:

Eik fasteignafélag hf. (EIK)

Eimskipafélag Íslands hf. (EIM)

Hagar hf. (HAGA)

Icelandair Group hf. (ICEAIR)

Marel hf. (MARL)

N1 hf. (N1)

Reitir fasteignafélag hf. (REITIR)

Síminn hf. (SIMINN)

„OMX Iceland 8 vísitalan er Úrvalsvísitala Nasdaq Iceland og er samsett af þeim átta félögum sem hafa mestan seljanleika á Nasdaq Iceland. Vægi félaga í OMX Iceland 8 vísitölunni ræðst af flotleiðréttu markaðsvirði, sem þýðir að einungis það hlutafé sem ætla má að myndi grunn að virkum viðskiptum á Nasdaq Iceland er hluti af vísitölunni,“ segir orðrétt í fréttatilkynningu frá Nasdaq.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK