Spyr um lögmæti flugpunkta og mjólkurmiða

Smári McCarthy, þingmaður Pírata.
Smári McCarthy, þingmaður Pírata. mbl.is/Golli

Smári McCarthy, þingmaður Pírata, hefur lagt fram fyrirspurn til fjármála- og efnahagsráðherra sem snýr meðal annars að því hvort að löglegt sé að búa til Monopoly-peninga, mjólkurmiða og flugpunkta.  

Í fyrirspurninni er vísað til 154. greinar hegningarlaga sem er svohljóðandi: „Sektum eða [fangelsi] allt að 3 mánuðum skal sá sæta, sem án heimildar í lögum býr til, flytur inn eða lætur úti handhafabréf, sem notuð kunna að verða til þess að ganga sem gjaldmiðill manna á milli, hvort heldur almennt eða innan sérstaks flokks manna, eða vænta má, að notuð verði á þann hátt. Ákvæði þessarar greinar taka ekki til erlendra peningaseðla.“ 

Spyr Smári hvernig hugtökin handhafabréf, erlendur peningaseðill, gjaldmiðill, búa til, flytja inn og að láta úti séu skilgreind í þessu samhengi.

Enn fremur spyr hann hvort að spilapeningar úr Monopoly-spilinu, mjólkurmiðar gefnir út af skóla, ávísun á erlenda bankainnstæðu, útprentun á tölvupósti með loforði um greiðslu í framtíðinni, flugpunktar hjá flugfélagi sem heimilar millifærslur milli viðskiptavina og inneignarnóta frá verslun sem er stíluð á handhafa falli undir greinina. 

Lög fyrir aðra tíma

Smári segir í samtali við mbl.is að ýmislegt í hegningarlögum hafi verið skrifað fyrir annan tíma en við búum við í dag. „Þessi kafli fjallar um peningafals og er búinn til á tíma þegar alþjóðleg viðskipti voru minni í sniðum og rafræn viðskipti voru ekki til.“ 

Þá segir Smári að í ljósi framþróunar í rafrænum viðskiptum sé nauðsynlegt að fá skilning á því hvernig greinin sé túlkuð, hvað orðin þýði og hvernig ráðuneytið beiti þessu. 

„Þessi atriði eru á gráu svæða samkvæmt orðalagi greinarinnar og þess vegna skiptir túlkunin svona miklu máli. Ég á ekki von á því að neitt af þessum atriðum verði túlkað á refsiverðan hátt og ég býst ekki við því að einhver verði ákærður fyrir að vera handhafi Monopoly-peninga en út frá þessari spurningu um þróun fjármálagerninga er þetta forvitnilegt.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK