Framkvæmdir hafnar í Auðbrekku

mbl.is/Hanna

Framkvæmdir eru hafnar í Auðbrekku í Kópavogi þar sem mikil endurbygging er áformuð. Nú má sjá stærðarinnar holu á bak við Bónus á Nýbýlavegi þar sem kranar og jarðvinnutæki hafa komið sér fyrir. 

Um er að ræða svæðið sem af­mark­ast af Hamra­borg í suðri og Ný­býla­vegi í norðri. Þar er fyrir ým­iss kon­ar at­vinnu­rekst­ur, svo sem veit­ingastaðir, bif­reiðaverk­stæði og versl­an­ir. 

Verkefnið hefur tafist þó nokkuð. Fram kom í Morg­un­blaðinu í byrj­un októ­ber 2015 að upp­bygg­ing nýs íbúðar­hverf­is í Auðbrekku myndi lík­lega hefjast vorið 2016 en þar áður voru væntingar um haustið 2014. 

Miðað hefur verið við að um 400 íbúðir verði í Auðbrekku fullbyggðri, þar af um 160 í neðri hlutanum sem tilheyra fyrstu áföngum verkefnisins. Þá verða einnig reist húsnæði fyrir atvinnurekstur. 

mbl.is/Hanna
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK