Icelandair hefur áætlunarflug til Kansas

Myndir frá Kansas City
Myndir frá Kansas City Wikipedia/Jordanbruening

Icelandair hefur ákveðið að hefja flug til bandarísku borgarinnar Kansas City. Borgin er 21. áfangastaðurinn í Norður-Ameríku sem Icelandair býður upp á í leiðakerfi sínu að því er fram kemur í fréttatilkynningu. Fljúga á til Kansas City þrisvar í viku frá maílokum til septemberloka.

Er sala farseðla þegar hafin.

„Kansas City-flugvöllur er sá stærsti í Bandaríkjunum þar sem ekkert beint flug til Evrópu er í boði. Með nágrannaborgum er íbúafjöldi svæðisins um 5 milljónir og Icelandair því að opna stóran spennandi markað fyrir íslenska ferðaþjónustu og styrkja tengiflug félagsins til og frá Evrópu“, er haft eftir Björgólfi Jóhannssyni, forstjóra Icelandair, í fréttatilkynningu.

Flugáætlun Icelandair í ár verður sú umfangsmesta í sögu félagsins en Kansas City er fjórði nýi áfangastaðurinn í flugáætlun Icelandair á árinu 2018. Áður hefur verið tilkynnt um að flug hefjist til  Cleveland og Dallas í Bandaríkjunum og Dublin á Írlandi, auk Berlínar sem bættist við leiðakerfið sl. nóvember.

Þá mun Icelandair taka í notkun þrjár nýjar 160 sæta Boeing 737 MAX 8 flugvélar í vor og verða alls 33 flugvélar nýttar til farþegaflugsins í sumar, 26 af Boeing 757 gerð og fjórar af Boeing 767-300 gerð auk nýju vélanna.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK